Eftirmál

Tal
Eftirmál
Senaste avsnittet

28 avsnitt

  • Eftirmál

    Wok On málið / Quang Le

    2026-2-02 | 1 h 14 min.
    Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur Quang Le fer yfir málið með okkur. 
    Styrktaraðilar Eftirmála eru:
    Nettó
    Eldum Rétt
    Collab

    Alfreð
    Intuens
    World Class
  • Eftirmál

    PIP brjóstapúðamálið

    2026-1-19 | 54 min.
    Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira en áratug eftir að það kom upp. 
    Styrktaraðilar Eftirmála eru:
    Nettó
    Eldum Rétt
    Collab

    Alfreð
    Intuens
    World Class
  • Eftirmál

    Skáksambandsmálið

    2026-1-06 | 1 h 8 min.
    Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmundsdóttur en stórum spurningum í málinu er enn ósvarað.
    Styrktaraðilar Eftirmála eru:

    -Nettó

    -NOLA snyrtivöruverslun / kóðinn EFTIRMÁL veitir 15% afslátt

    -Eldum Rétt
    -Collab

    -Alfreð

    -Intuens
    -World Class
  • Eftirmál

    Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan

    2025-12-22 | 1 h 1 min.
    Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum yfir þetta umfangsmikla mál í þættinum og ræðum við skyldmenni Ásu.

    Styrktaraðilar Eftirmála eru:
    -Nettó

    -NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38

    -Eldum Rétt

    -World Class

    -Collab

    Samsetning þáttar: Adelina Antal
    Klippur í þættinum: 
    Is Rex Heuermann the serial killer behind the Gilgo Beach murders in Long Island?  YouTube
    Gilgo Beach suspect Rex Heuermann’s estranged wife screams at reporters YouTube
    YouTube The Gilgo Beach Killer: House of Secrets Official Trailer Peacock Original YouTube
  • Eftirmál

    Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík

    2025-12-08 | 1 h 8 min.
    Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns.

    Styrktaraðilar Eftirmála eru:

    -NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38

    -Nettó

    -Eldum Rétt

    -World Class

    -Collab

Fler podcasts i Konst

Om Eftirmál

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
Podcast-webbplats

Lyssna på Eftirmál, Konstnärshålet och många andra poddar från världens alla hörn med radio.se-appen

Hämta den kostnadsfria radio.se-appen

  • Bokmärk stationer och podcasts
  • Strömma via Wi-Fi eller Bluetooth
  • Stödjer Carplay & Android Auto
  • Många andra appfunktioner

Eftirmál: Poddsändningar i Familj

Sociala nätverk
v8.4.0 | © 2007-2026 radio.de GmbH
Generated: 2/5/2026 - 5:17:19 AM